NOTKUNARDÆMI

Byrjum á
raunverulegu verkefni.

Besti upphafspunkturinn er þörf í rekstrinum. Hér eru aðstæður sem hjálpa okkur að finna réttu spurningarnar.

Dæmin eru hugsuð til skýringar. Þau eru ekki lýsingar á viðskiptavinum eða staðfestum innleiðingum.

01BIRGJAR & VERKTAKARZafePass

Einn sérfræðingur. Eitt kerfi.

Þjónustuaðili þarf að tengjast til að sinna viðhaldi. Hann þarf aðgang að tilteknu kerfi, en ekki öðrum hlutum umhverfisins.

Það sem við viljum skoða

Skoðum aðgang að tiltekinni þjónustu, staðfestingu notanda og tækis og skráningu tenginga með ZafePass. Skilgreinum hvernig aðgangurinn er veittur og afturkallaður.

Hvað ætti birgirinn raunverulega að geta nálgast?
02REKSTUR & MIKILVÆGIR INNVIÐIRZafePass

Margar starfsstöðvar. Skýr aðgreining.

Vinnsla, veita eða annað fyrirtæki rekur mikilvæg kerfi á fleiri en einum stað. Aðgangsþarfir eru ólíkar eftir fólki, verkefnum og starfsstöðvum.

Það sem við viljum skoða

Framleiðandinn lýsir aðgreindum gáttahópum í ZafePass. Skoðum hvort slík afmörkun hentar kerfunum, tengingunum og rekstrarkröfum hvers staðar.

Hvar eiga mörkin milli kerfa og starfsstöðva að liggja?
03FJARVINNA & FERÐALÖGZafePass

Vinnan fylgir fólkinu. Reglurnar líka.

Starfsfólk vinnur að heiman eða á ferðinni. Kerfin þurfa að vera aðgengileg við réttar aðstæður án þess að staðsetning ein og sér ráði trausti.

Það sem við viljum skoða

Metum hverjir þurfa hvaða þjónustur og af hvaða tækjum. ZafePass tengir aðgangsreglur við notanda og tæki. Staðfestum stuðning við stýrikerfi og auðkennislausnir áður en lengra er haldið.

Hvað þarf starfsfólkið til að vinna, hvar sem það er?
04STJÓRNENDUR & VIÐKVÆM VERKEFNIZafeMessenger

Samtal með skilgreinda umgjörð.

Stjórnendur eða verkefnateymi ræða viðkvæm mál og deila trúnaðargögnum. Þau vilja skýra stjórn á þátttakendum, vistun og varðveislu.

Það sem við viljum skoða

Skoðum ZafeMessenger á eigin innviðum, lokaðar rásir og varðveislustillingar. Greinum hver sér um rekstur, afrit og aðgangsstýringu.

Hver á að geta tekið þátt og hversu lengi á samtalið að geymast?
05SAMVINNA YFIR FYRIRTÆKJAMÖRKZafeMessenger

Bjóddu fólki inn. Afmarkaðu þátttökuna.

Ráðgjafi, viðskiptavinur eða samstarfsaðili þarf að taka þátt í tilteknu samtali. Hann þarf ekki að sjá allt samskiptaumhverfi fyrirtækisins.

Það sem við viljum skoða

Framleiðandinn lýsir takmörkuðum gestaaðgangi í ZafeMessenger. Staðfestum hvaða samskipti gestir geta átt, hvernig þeir auðkenna sig og hvernig þátttöku þeirra lýkur.

Hvað þarf gesturinn að sjá og hvað á að vera utan hans aðgangs?

Skoðum saman hvort þetta hentar ykkur.

Stutt samtal við Kastro · ekkert er sent sjálfkrafa

Óska eftir samtali